- 8 stk Hälsans Kök Sojapylsur
- 1 stk chilipipar
- 3 stk tómatar
- 1 stk vorlaukur
- 2 tsk fínhakkað kóríander
- 2 tsk fínhökkuð steinselja
- Safi úr einu lime og börkurin fínt rifin
- 1 msk ólífuolía
- Mulin svartur pipar
- Salt
- 2 dl grískt jógúrt
- Tortillakökur eða stökkar salsaflögur
Aðferð
Salsadressing: Skerið tómata í tvennt og skerið burt kjarna, skerið tómatkjötið í fína teninga. Skerið chilipipar langsum og hreinsið burt fræ. Fín hakkið chili piparin og vorlaukin. Blandið tómatkjöti,chilipipar,vorlauk,jurtum og lime berki í skál. Setjið eina tsk lime safa útá og kryddið með salti og pipar, kælið.
Blandið saman restinni af limesafanum við ólífuolíu og salti og pipar, penslið pylsurnar með dressingunni og steikið á pönnu eða grilli við meðal hita í ca.5 mín.
Berið fram með volgum tortillakökum eða salsa flögum, grísku jógúrti og salsadressingu. Einnig er gott að bera fram ferskt gott salat með réttinum.